Posts

LJÓS Í GLUGGUM ALLANN SÓLAHRINGINN

Image
Ljósið er svo mikill gleðigjafi og okkur finnst það svo sjálfsagt að hafa ljósið . Bara að öllum finnist líka það sama með innra ljósið sem margir kveikja ekki á. Ég bið Guð að leiða þá til hinnar einu sönnu stjörnu sem við getum ekki verið án það er Jesú Kristur. Fallegar stjörnur sem ég setti í gluggana Þessi fallegi krans sem er úr þurrkuðum laufum er á útidyrahurðinni að innann og hangir lítil handmáluð postulínsbjalla í miðjunni á honum . Gaman að horfa á fallega hluti

Iceland Beautiful snowland

Image

JÓLASTEMMING Í SVEITINNI

Image
UPPLÝSTIR FJALLATOPPAR FRÁBÆR SJÓN ! ÁLFTAVATNIÐ BJARTA. ÞAÐ GLITTIR Í GAMLA SUMARBÚSTAÐINN OKKAR Á ÞESSARI MYND HÉR FYRIR NEÐAN. - ÁLFTAVATN- ÁSBORGIR OG BOTNSÚLUR Í BAKSÝN. VEGURINN HEIM! FLOTTTTTT

SVONA Á ÞETTA AÐ VERA ÞEGAR VIÐ SKRIFUM Á JÓLAKORTIN

Image
Jólasmákökur og kertaljós og líka svolítil hollusta eins og ein eða tvær klementínur ! og ekki má vanta jólalögin eins og þetta hér fyrir neðan sem ég setti inn þann 2.des. Gangi ykkur vel að skrifa!

WHITE CHRISTMAS - BING GROSBY

DAGLEGT LÍF Í FISKATJÖRN OG HÚSI

Image
Við erum með fiskatjörn hérna við húsið hjá okkur og eru fiskarnir í henni orðnir allstórir. Nú er allt í kringum hana frosið en sjálf tjörnin er upphituð og þeim gengur bara vel að lifa veturinn af. Inni gengur okkur líka allvel að halda á okkur hita á aðventunni og kertaljósið yljar líka en bara á annann hátt. Útsýnið hjá okkur er svona um þessar mundir og finnst mér það mjög notalegt og kósý! Og sérstaklega þegar við sitjum og ornum okkur við arineldinn!

HAMINGJUSAMASTA FÓLK VERALDAR

Image
Sálm 144:15-15 -15- Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir, sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði. Ef þið viljið finna hamingju og frið í öllu, sem þið gjörið, verðið þið ávallt að hafa dýrð Guðs í huga. Viljið þið hafa frið í hjarta, verðið þið af einlægni að leitast við að líkja eftir lífi Krists. Þá verður ekki þörf fyrir neina uppgerðar glaðværð eða að leita skemmtana til að næra hroka og hégóma heimsins. Við það að gjöra rétt munuð þið eiga rósemi og hamingju, sem þið munuð aldrei eignast á vegi ranglætisins. Jesús íklæddist mannlegu eðli, lifði bernsku, æsku og unglingsár, svo að hann gæti sett sig í spor allra og gefið öllum börnum og æskufólki eftirdæmi. Hann þekkir freistingar og veikleika barna. Hann hefur í kærleika sínum opnað lind ánægju og gleði þeirri sál,sem treystir honum . Með því að leitast við að heiðra Krist og fylgja fordæmi hans, geta börn og æskufólk verið sannarlega hamigjusöm. Þau geta fundið til ábyrgðar sinnar varðandi það að starfa með kristi að hinu mikla...

Dagurinn styttist

Image
Birtan er svo falleg en varir stutt ! Verum varkár þegar við látum kertaljósið lýsa okkur við eigum það til að gleyma þeim og setja þau of nálægt gardínum og þessháttar hlutum. Verum varkár þegar við kveikjum á kertunum.

Ljós í myrkri

Image
Þessi fallega litla kirkja sem stendur þarna á borðinu er komin til ára sinna en það fylgir henni svo góð minning og svo spilar hún svo fallegt jólalag ! Og svo aðventuljósin í Gluggunum þau eru alveg nauðsynleg í myrkrinu sem umlykur allt um þessar mundir. Fallegur blómvöndur sem Óli maðurinn minn færði mér á afmælisdeginum mínum 25.nóv. Syngjandi börn - mikil jólastemming - Keypti þetta hjá Amisfólki þegar ég var í Ameríku.

Ljós í myrkri

Image
Fallegur aðventukrans til að hengja á útidyrahurðina eða bara á einhvern áberandi stað. Gerðu andrúmsloftið á heimili þínu ilmandi af hlýlegri hugulsemi. Á heimilinu á að birtast hinn hreinasti og háleitasti kærleikur. Á hverjum degi ætti með þolgæði að hlúa að friði, samræmi, kærleika og hamingju, þar til þessir dýrmætu þættir búa í hjörtum þeirra sem fjölskylduna mynda. Ástæða þess, að í heiminum eru svo margir harðbrjósta menn og konur nú á dögum, er sú, að litið hefur verið á sannan kærleika sem veikleika og haldið hefur verið aftur af honum og hann bældur niður. Betri eðlisþáttum þeirra, sem þennan hóp skipa, hefur í bernsku verið spillt og ekki náð að þroskast. Hamingja slíkra er grafin að eilífu, nema geislar guðlegs ljóss fái brætt kulda þeirra og eigingirni. Ef við viljum eiga hlýtt hjarta, eins og Jesús átti, þegar hann var hér á jörðinni, og helgaða samúð, eins og englarnir hafa með syndugum, dauðlegum mönnum, verðum við að rækta með okkur hugarfar bernskuáranna, sem er ein...