Posts

Showing posts from November 29, 2008

HAMINGJUSAMASTA FÓLK VERALDAR

Image
Sálm 144:15-15 -15- Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir, sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði. Ef þið viljið finna hamingju og frið í öllu, sem þið gjörið, verðið þið ávallt að hafa dýrð Guðs í huga. Viljið þið hafa frið í hjarta, verðið þið af einlægni að leitast við að líkja eftir lífi Krists. Þá verður ekki þörf fyrir neina uppgerðar glaðværð eða að leita skemmtana til að næra hroka og hégóma heimsins. Við það að gjöra rétt munuð þið eiga rósemi og hamingju, sem þið munuð aldrei eignast á vegi ranglætisins. Jesús íklæddist mannlegu eðli, lifði bernsku, æsku og unglingsár, svo að hann gæti sett sig í spor allra og gefið öllum börnum og æskufólki eftirdæmi. Hann þekkir freistingar og veikleika barna. Hann hefur í kærleika sínum opnað lind ánægju og gleði þeirri sál,sem treystir honum . Með því að leitast við að heiðra Krist og fylgja fordæmi hans, geta börn og æskufólk verið sannarlega hamigjusöm. Þau geta fundið til ábyrgðar sinnar varðandi það að starfa með kristi að hinu mikla