YNDISLEG SAMVERA FJÖLSKYLDUNNAR Á JÓLUNUM


Fjölskyldan borðaði öll saman í Ásborgum á Jólakvöld.
(það eru ekki allir við borðið á þessari mynd)

Ég með börnunum mínum
Fjölskyldan er orðin stór eða alls 20 manns, svo við þurftum að skipta okkur í tvennt, hluti af börnunum borðaði í garðskálanum þeim þótti það ekki verra!
Á aðfangadagskvöld var Lalla ,Ingó og strákarnir þeirra og Mamma í mat hjá okkur.

Áhuginn leynir sér ekki á þessari mynd! þetta er hann Hinrik Ari.
Þeir voru svolítið spenntir eins og til er ætlast á þessu kvöldi og ánægðir að sjá hvað var í pökkunum sem þeir fengu.

Óli að lesa á pakkana!

Mamma er alltaf hjá okkur á aðfangadagskvöld hún er orðin 89.ára og bara nokkuð hress! alla vega þegar hún tekur upp pakkana sína!!

Þorláksmessa: Öll fjölskyldan koma í hangikjöt og skiptist á pökkum

Comments

Popular posts from this blog

Still learning

SWEET DECORATION